Jakob Baldursson varð á laugardaginn bikarmeistari í kraftlyftingum annað árið í röð á móti sem haldið var í Gym80 í Reykjavík. Jakob lyfti 300 kg í hnébeygju, 255 kg í bekkpressu og 260 kg í réttstöðulyftu. Samtals lyfti hann því 815 kg og hafði hann nokkra yfirburði í mótinu.